Gleðilegt ár krúsídúllurnar mínar! og takk fyrir það gamla.
jæja þá er 2006 liðið og margt skemmtilegt sem gerðist á
því ári
eigum við ekki bara að taka þetta mánuð frá mánuð
Janúar: Í janúar skelltum við okkur í skemmtilega
sumarbústaðaferð nokkrar af álftanespíkunum þar sem Sonja fór alveg
á kostum.
Ölvun var nú í algjöru lámarki í þessari ferð þar
sem þá var mætt á svæðið lítil baun sem ég var svo viss um að væri
strákur
þannig að Sonja sá nú um mestu drykkjuna þessa helgi en
stelpurnar hinar reyndu eitthvað að halda í við hana. Í janúar
skelltum við okkur líka til Tenerife með vinafólki okkar sem var
svo nice. Enda var maður orðinn ansi þreyttur eftir brjálaða
vinnutörn í desember og ekki sá ég fram á að fara neitt um
sumarið.
Í febrúar lést stjúpmamma himma eftir langa baráttu við
lungnakrabbamein. En mars var örlítið gleðilegri.Þá fórum við í
okkar árlegu sumarbústaðaferð vinahópurinn og í þetta skipti var
bara leigt stærðarinnar hús með "sundlaug" enda hefur hópurinn
stækkað jafnt og þétt. Gleðitíðindi mars mánuðar voru þau að lítill
bumbubúi var mættur á svæðið hjá Brimrúnu og Kidda og í lok
marsmánaðar fengum við að vita að litli strákurinn minn var stelpa
.
Apríl var nú í rólegri kantinum en við pjöllurnar hittust þó í
einu skralli heima hjá kollu sem var mjög gaman. Enduðum á sveittu
balli á Players þar sem Viktoría hitti Keanu Reeves
hver man
ekki eftir því hehe. Maí var svo bara mjög rólegur fyrir utan
síðustu helgina þar sem við fórum á Klaustur þar sem haldin er stór
mótókrosskeppni einu sinni á ári.
Í júní fór ég svo í 2 útilegur til viðbótar og auðvitað
ógleymanlegir afmælistónleikar Bubba í höllinni.. þeir voru æði!! Í
júlí stakk Himmi mig svo af og skellti sér með ella til pabba síns
þar sem þeir fóru með honum í rútuferð til tjekklands. Vá hvað mér
fannst ég eiga bágt að þurfa að vera svona heima þar sem ALLIR fóru
til útlanda 
Svo kom ágúst.. mánuðurinn sem ég var búin að bíða svo lengi
eftir því ég hélt að ég þyrfti ekki að ganga fram yfir allavega
ekki mikið! þannig að ágúst fór í að "bíða" var reyndar mjög mikið
í sundlauginni að sóla mig allan ágúst það var voða næs
já og
fékk líka að vita af bauninni hennar Katrínar. Svo kom september..
bjóst nú aldrei við því að þetta barn kæmi í september en Sonja
fékk sínu framgengt og litla prinsessan okkar fæddist
5.september.
Í október fékk svo litla daman nafn: Sara Rún. þá fór ég nú líka
að byrja að skrappa með stelpunum og verður maður ekki að telja það
til tíðinda?
Nóvember var nú bara frekar rólegur mánuður enda
allt komið á gott ról hjá okkur mæðgum. Jú við forum á æðislegt
jólahlaðborð í Perlunni vinahópurinn.
Í byrjun desember voru það svo Rockstar tónleikarnir sem
voru alveg brill og í desember fæddist svo litli "frændi". Hann
fékk svo nafn í gær og heitir því stóra nafni Björgólfur Bersi
eftir afa sínum ( þ.e Björgólfsnafnið). Í lok desember forum við
líka á tónleika með sálinni og gospel sem voru æði.
Já þetta voru svona helstu hlutirnir hjá mér þetta árið en
auðvitað gerðist margt fleira eins og t.d fæðing allra þessa barna!
Daníel í janúar, Eva María í apríl, Kolka í maí, Salome í júní og
Kara í júlí. Og við auðvitað flestar hérna urðum 25 ára (sem
samkvæmt Sonju þýðir ekki að vera hálffimmtugur hehe)
Held að jákvæðustu hlutir ársins hafi verið öll þessi börn
og það hvað ég hef eignast frábærar vinkonur á árinu sem ég var í
raun að kynnast alveg upp á nýtt! Þær maría, maría og ólöf 
Það neikvæða við árið er helst það hvað sumir sem við gjarnan
vildum að væru í okkar lífi hafa því miður verið of lasnir til að
taka þátt í þeirri gleði okkar sem var að eignast hana Söru Rún. En
vonandi rætist úr því.
Já eins og þið sjáið hefur mikið breyst hjá manni á einu ári,
sést kanski best á því að kl er að verða 11 á nýársdag og ég er
löngu vöknuð og búin að skrifa þetta allt saman
þökk sé dóttur
minni, vekjaraklukkunni 
Ég vona að ég sé nú ekki að gleyma neinu rosalega merkilegu en
ef svo er ber ég við brjóstaþoku!!
Knús til ykkar allra!!
kv. Dagbjört